Dagskrá

Davíð Máni & Band | Upphitun: Unknown Fantasy & Skag

fim. 18. jún 2026 · 21:00

Um viðburðinn

DAVÍÐ MÁNI & HLJÓMSVEIT Á LEMMY Upphitun: Unknown Fantasy & Skag Davíð Máni er íslenskur tónlistarmaður sem þekktur hefur verið fyrir hlutverk sitt sem forsprakki Miomantis og hefur einnig komið fram með ótal tónlistarmönnum að norðan, þar á meðal Drengnum Fengnum og Ara Orrasyni svo eitthvað sé nefnt. Síðan 2025 hefur Davíð spilað undir eigin nafni og þótt rækilega duglegur bæði við tónleikahald og útgáfur. Þar á meðal hefur hann gefið út plötuna The Mancave Tapes, sem dregur fólk aftur til tíunda áratugsins með hörkulegu grunge rokki og sameinar marga rokkara úr norðlensku senunni á nokkrum lögum. Ásamt því hefur hann gefið út jóla­ábreiðuplötuna „Davíð Máni & Hljóðfærasveinarnir" og hefur nú lokið upptökum á seinni plötu sinni undir eigin nafni sem væntanleg er á árinu. Þegar kemur að tónleikahaldi hefur Davíð verið með svo kallaða live hljómsveit sem þykir þétt spiluð og ætti enginn að láta þá framhjá sér fara, þegar þeir draga upp eldra sem og nýtt efni, krydda það og setja í endurnýjaðan og betri búning fyrir sviðið. Ekki missa af Davíð Mána & Hljómsveit á LEMMY ásamt upphitun frá Unknown Fantasy og Skag.