Dagskrá

GG Blús — Tónleikar á LEMMY

fös. 22. maí 2026 · 21:00

Um viðburðinn

GG BLÚS - TÓNLEIKAR Á LEMMY Blús-rokk-dúettinn GG blús heldur tónleika á LEMMY við Austurstræti, föstudagskvöldið 22 maí og hefjast þeir kl. 21:00. Þeir Guðmundur Jónsson (gítar og söngur) og Guðmundur Gunnlaugsson (trommur og söngur) hafa komið víða við í íslensku tónlistarlífi, í hljómsveitum eins og Sálinni hans Jóns míns, Kentár, Sixties og fleirum. Þeir nafnar hafa að undanförnu getið sér gott orð fyrir tónleika sína og munu leika jöfnum höndum eigin ópusa og velvaldar ábreiður genginna kynslóða, þar sem frumleg nálgun þeirra á margnotuðum blús-rokk minnum fær að njóta sín. Það er frítt inn! Sjáumst á LEMMY!